Fara í efni

Gullkistan á Menningarráðstefnu 2026

Gullkistan Vestfirðir á Menningarráðstefnu 2026 - Kynning á menningu- og skapandi greinum í Bryggjusal Edinborgarhússins 26. nóvember frá kl. 15:00-17:30

Gullkistan Vestfirðir segir við sögur af svæði sem þorir og getur – þar sem sköpunarkraftur, frumkvæði og fjölbreytt menningarlíf móta samfélag í stöðugri þróun.

Í tengslum við ráðstefnu Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytisins um menningu, listir og skapandi greinar á Vestfjörðum verður kastljósinu beint að því öfluga menningar- og sköpunarstarfi sem á sér stað víða um svæðið.

Gullkistan Vestfirðir er vettvangur til að draga fram þann auð sem felst í listsköpun, hönnun, menningarstarfi og skapandi frumkvæði á Vestfjörðum. Markmiðið er að sýna Vestfirði sem lifandi og framsækið svæði þar sem sterkar rætur, hugvit og sköpun skapa ný tækifæri fyrir samfélagið og framtíð þess.

Þátttaka er þátttakendum að kostnaðarlausu og hvetjum við öll sem starfa á sviði menningar og skapandi greina á Vestfjörðum til að nýta þetta tækifæri til að kynna starfsemi sína og skapa ný tengsl.