Fara í efni

Gullkistan Vestfirðir býður heim í Súðavík

Gullkistan Vestfirðir býður heim í Súðavíkurhrepp næstkomandi laugardag 22. ágúst 2026. Þar sem það er starfsemi víða í hreppnum  munu Litlibær, Ögur Travel og Heydalur vera með tilboð fyrir gesti allan daginn og bjóða gesti velkomna að kynna sér starfsemina. Saltverk býður einnig gestum að koma í Reykjanes í kynnisferðir um verksmiðjuna og tilboð á vörum fyrirtækisins.

Raggagarður verður með skemmtilega leiki og kynningar frá kl 12:00-15:00 og boðið verður heim í Samkomuhúsinu í Súðavík frá kl 13:00-16:00. Þar verða Saltverk, Súðavíkurhreppur, Íslenska kalkþörungafélagið og Ljúffengur.   

Það er því tilvalið fyrir Vestfirðinga að fá sér bíltúr og kynna sér atvinnulífið og ferðaþjónustuna í Súðavík og eiga góðan dag í Djúpinu og hafa litla berjafötu með sér og fara milli kaffihúsa og kaupa salt í grautinn.