Fara í efni

Gullkistan Vestfirðir býður heim í Súðavík

Gullkistan Vestfirðir býður heim í Súðavíkurhrepp næstkomandi laugardag 22. ágúst 2026. Þar sem það er starfsemi víða í hreppnum  munu Litlibær, Ögur Travel og Heydalur vera með tilboð fyrir gesti allan daginn og bjóða gesti velkomna að kynna sér starfsemina.  Raggagarður verður með skemmtilega leiki og kynningar frá kl 12:00-15:00 og svo bjóða fyrirtækin sem eru staðsett í Súðavík heim frá kl 13:00-16:00.   

Það er því tilvalið fyrir Vestfirðinga að fá sér bíltúr og kynna sér atvinnulífið og ferðaþjónustuna í Súðavík og jafnvel hægt að eiga góðan dag í Djúpinu og hafa litla berjafötu með sér og fara milli kaffihúsa.