Fyrirtæki hafa í sumar boðið heim undir merkjunum Gullkistan Vestfirðir og hafa heimboðin verið mjög fjölbreytt og skemmtileg en nú standa heimboðin sem hæst.
Á síðustu helgi var boðið heim á Bryggjuhátíðinni á Drangsnesi þar sem 16 fyrirtæki buðu heim og skapaðist virkilega skemmtileg stemming og margt kom á óvart. Kynnt var alvöru beitningaskúr, glæný björgunarmiðstöð, þorskgildrur, seiðaeldi, útgerðirnar og frábær aðstaða fyrir ferðmann.
Næstu vikurnar býður Gullkistan heim á eftirfarandi stöðum:
25. júlí 2026 Tálknafjöri í Tálknafirði
31. júlí 2026 Bíldó um Versló
7. ágúst 2026 Act Alone á Suðureyri
14. ágúst 2026 Reykhóladagar í Reykhólasveit
Einstakt tækifæri fyrir Vestfirðinga að skella sér í bíltúr og skoða atvinnulíf nágrannanna á heimavelli.
Heimboðin eru tengd fjölbreyttum bæjarhátíðum og mörkuðum á Vestfjörðum en yfirumsjón með verkefninu er í höndum Vestfjarðastofu.
Allar nánari upplýsingar eru á síðu Vestfjarðastofu www.vestfirdir.is