Fara í efni

Gullkistan Vestfirðir

Fréttir

Komdu í heimsókn og kynntu þér kröftugt atvinnu- og menningarlíf um alla Vestfirði. Á bæjarhátíðum og viðburðum ársins opna fyrirtæki og þátttakendur dyr sínar, sýna hvað býr að baki og bjóða gestum að upplifa fólkið, hugmyndirnar og kraftinn sem mótar framtíð svæðisins.

Gullkistan Vestfirðir er lifandi vettvangur þar sem gestir fá að kynnast fólkinu, fyrirtækjunum, menningunni og hugmyndunum sem skapa verðmæti á Vestfjörðum.

Verkefnið dregur fram fjölbreytileikann á svæðinu og býður gestum að sjá hvað gerist á bak við tjöldin hjá fyrirtækjum, stofnunum, listafólki og frumkvöðlum. Þetta er tækifæri til að fá innblástur, mynda tengsl og njóta sín í ekta vestfirskri stemmningu.

Hér má sjá viðburði Gullkistunnar í tímaröð og hvaða fyrirtæki bjóða gestum í opið hús hverju sinni.