Fara í efni

Reykhólahreppur - Skólaliða og matráð vantar í Reykhólaskóla

Störf í boði

Skólaliða vantar í Reykhólaskóla

100% starf, 36 tíma vinnuvika

Möguleiki á minna starfshlutfalli eða tveir aðilar skipta á milli sín starfinu

Skólaliði sér um ræstingu á vinnustað. Starfar einnig með nemendum í leik og starfi. Getur einnig verið í frímínútnagæslu. Hann skal hafa góða hæfni í mannlegum samskiptum, hafa skólareglur í heiðri og reglugerð þar að lútandi. Hann sýnir nemendum skóla gott fordæmi, er jákvæður, traustur og samkvæmur sjálfum sér


Helstu verkefni og ábyrgð

 

  • Aðstoðar nemendur inn í bekk eftir þörfum.
  • Dagleg ræsting í grunnskóla og matsal samkvæmt starfsáætlun og skipulagi.
  • Starfar með nemendum í leik og starfi.
  • Móttaka nemenda og umsjón með þeim að morgni eftir þörfum.
  • Frímínútnagæsla innanhúss og utanhúss, gæsla í morgun- og hádegismat eftir því sem þörf er á.
  • Almenn gangavarsla og eftirlit með nemendum og búnaði.
  • Aðstoða nemendur til og frá skólabíl eftir aðstæðum.
  • Baðgæsla við íþrótta- og sundtíma þegar við á.

 

Laun og starfskjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og hlutaðeigandi stéttarfélags.

Starfsfólk sem flytur til Reykhólahrepps í fast starf hjá sveitarfélaginu fær flutningsstyrk.

Nánari upplýsingar um starfið veitir skólastjóri á netfanginu skolastjori@reykholar.is eða í síma 434-7731.

Umsóknarfrestur er til og með 26. apríl 2026.

Reykhólahreppur er á Vestfjörðum en á mörkum Vesturlands í tæplega klukkustundaakstri frá Hólmavik og Búðardal. Í Reykhólahreppi búa um 250 manns. Þar er gott skóla- og tómstundastarf. Reykhólaskóli er samrekinn grunn- og leikskóli með um 50 nemendur.

 

Matráður óskast við Reykhólaskóla

Laust er til umsóknar starf matráðs við Reykhólaskóla, sameinaðs grunn- og leikskóla á Reykhólum.
Um er að ræða 100% starf frá og með 1. maí 2026

Það kemur til greina að ráða inn afleysingu í maí og júní 2026

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Yfirumsjón með eldhúsi
  • Útbúa morgunmat, millimál, hádegisverð og kaffitíma þar sem áhersla er lögð á fjölbreytni og hollustu.
  • Skipulag og umsjón með þrifum á mötuneyti og matsal.
  • Innkaup á matvöru og annarri rekstrarvöru fyrir mötuneytið.
  • Skipulag á matseðlum, allt að mánuð fram í tímann.

Menntunar- og hæfniskröfur

  • Haldbær menntun og reynsla á sviði matargerðar.
  • Góð hæfni í mannlegum samskiptum og rík þjónustulund
  • Góð skipulagshæfni
  • Metnaður og áhugi á matargerð
  • Góð íslenskukunnátta æskileg.
  • Menntun í matargerð er kostur
  • Reynsla af starfi í matargerð er kostur
  • Jákvæðni, drifkraftur og sjálfstæði í störfum

 

Laun og starfskjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og hlutaðeigandi stéttarfélags.

Starfsfólk sem flytur til Reykhólahrepps í fast starf hjá sveitarfélaginu fær flutningsstyrk.

Nánari upplýsingar um starfið veitir skólastjóri á netfanginu skolastjori@reykholar.is eða í síma 434-7731.

Umsóknarfrestur er til og með 26. apríl 2026.