Skólaliða vantar í Reykhólaskóla
100% starf, 36 tíma vinnuvika
Möguleiki á minna starfshlutfalli eða tveir aðilar skipta á milli sín starfinu
Skólaliði sér um ræstingu á vinnustað. Starfar einnig með nemendum í leik og starfi. Getur einnig verið í frímínútnagæslu. Hann skal hafa góða hæfni í mannlegum samskiptum, hafa skólareglur í heiðri og reglugerð þar að lútandi. Hann sýnir nemendum skóla gott fordæmi, er jákvæður, traustur og samkvæmur sjálfum sér
Helstu verkefni og ábyrgð
- Aðstoðar nemendur inn í bekk eftir þörfum.
- Dagleg ræsting í grunnskóla og matsal samkvæmt starfsáætlun og skipulagi.
- Starfar með nemendum í leik og starfi.
- Móttaka nemenda og umsjón með þeim að morgni eftir þörfum.
- Frímínútnagæsla innanhúss og utanhúss, gæsla í morgun- og hádegismat eftir því sem þörf er á.
- Almenn gangavarsla og eftirlit með nemendum og búnaði.
- Aðstoða nemendur til og frá skólabíl eftir aðstæðum.
- Baðgæsla við íþrótta- og sundtíma þegar við á.
Laun og starfskjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og hlutaðeigandi stéttarfélags.
Starfsfólk sem flytur til Reykhólahrepps í fast starf hjá sveitarfélaginu fær flutningsstyrk.
Nánari upplýsingar um starfið veitir skólastjóri á netfanginu skolastjori@reykholar.is eða í síma 434-7731.
Umsóknarfrestur er til og með 26. apríl 2026.
Reykhólahreppur er á Vestfjörðum en á mörkum Vesturlands í tæplega klukkustundaakstri frá Hólmavik og Búðardal. Í Reykhólahreppi búa um 250 manns. Þar er gott skóla- og tómstundastarf. Reykhólaskóli er samrekinn grunn- og leikskóli með um 50 nemendur.
Matráður óskast við Reykhólaskóla
Laust er til umsóknar starf matráðs við Reykhólaskóla, sameinaðs grunn- og leikskóla á Reykhólum.
Um er að ræða 100% starf frá og með 1. maí 2026
Það kemur til greina að ráða inn afleysingu í maí og júní 2026
Helstu verkefni og ábyrgð
- Yfirumsjón með eldhúsi
- Útbúa morgunmat, millimál, hádegisverð og kaffitíma þar sem áhersla er lögð á fjölbreytni og hollustu.
- Skipulag og umsjón með þrifum á mötuneyti og matsal.
- Innkaup á matvöru og annarri rekstrarvöru fyrir mötuneytið.
- Skipulag á matseðlum, allt að mánuð fram í tímann.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Haldbær menntun og reynsla á sviði matargerðar.
- Góð hæfni í mannlegum samskiptum og rík þjónustulund
- Góð skipulagshæfni
- Metnaður og áhugi á matargerð
- Góð íslenskukunnátta æskileg.
- Menntun í matargerð er kostur
- Reynsla af starfi í matargerð er kostur
- Jákvæðni, drifkraftur og sjálfstæði í störfum
Laun og starfskjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og hlutaðeigandi stéttarfélags.
Starfsfólk sem flytur til Reykhólahrepps í fast starf hjá sveitarfélaginu fær flutningsstyrk.
Nánari upplýsingar um starfið veitir skólastjóri á netfanginu skolastjori@reykholar.is eða í síma 434-7731.
Umsóknarfrestur er til og með 26. apríl 2026.