13. maí 2026
Störf í boði
Mjólkurvinnslan Arna í Bolungarvík óskar eftir að ráða gæðastjóra til starfa.
Við leitum að öflugum og metnaðarfullum einstaklingi með reynslu eða þekkingu á gæðamálum.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Leiða áframhaldandi þróun gæðakerfis Örnu
- Viðhalda, uppfæra og tryggja eftirfylgni með verklagsreglum, ferlum og gæðaskjölum
- Tryggja að starfsemi fyrirtækisins uppfylli kröfur laga og viðeigandi staðla
- Skipuleggja innri og ytri úttektir
- Vera tengiliður gagnvart eftirlitsaðilum
- Framkvæma gæðamælingar og greina niðurstöður
- Fræðsla og stuðningur við starfsfólk og stuðla að öflugri gæðamenningu
- Stýra og taka þátt í stöðugum umbótum
Menntunar- og hæfniskröfur
- Menntun eða reynsla sem að nýtist í starfi
- Reynsla af gæðastjórnun og innleiðingu gæðakerfa
- Þekking á örverufræði og örverumælingum er kostur
- Nákvæm og öguð vinnubrögð
- Sjálfsstæði og frumkvæði
- Góð íslensku- og enskukunnátta
- Góð tölvukunnátta