Fara í efni

Arna - Gæðastjóri í Bolungarvík

Störf í boði

Mjólkurvinnslan Arna í Bolungarvík óskar eftir að ráða gæðastjóra til starfa.

Við leitum að öflugum og metnaðarfullum einstaklingi með reynslu eða þekkingu á gæðamálum.

 
Helstu verkefni og ábyrgð
  • Leiða áframhaldandi þróun gæðakerfis Örnu
  • Viðhalda, uppfæra og tryggja eftirfylgni með verklagsreglum, ferlum og gæðaskjölum
  • Tryggja að starfsemi fyrirtækisins uppfylli kröfur laga og viðeigandi staðla
  • Skipuleggja innri og ytri úttektir
  • Vera tengiliður gagnvart eftirlitsaðilum
  • Framkvæma gæðamælingar og greina niðurstöður
  • Fræðsla og stuðningur við starfsfólk og stuðla að öflugri gæðamenningu
  • Stýra og taka þátt í stöðugum umbótum
 
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Menntun eða reynsla sem að nýtist í starfi
  • Reynsla af gæðastjórnun og innleiðingu gæðakerfa
  • Þekking á örverufræði og örverumælingum er kostur
  • Nákvæm og öguð vinnubrögð
  • Sjálfsstæði og frumkvæði
  • Góð íslensku- og enskukunnátta
  • Góð tölvukunnátta

Sækja um starf