Kæra vestfirska myndlistarfólk og ljósmyndarar. Þann 6. september verður sýningin Gullkistan Vestfirðir haldin í íþróttahúsinu Torfnesi á Ísafirði. Sýningunni er ætlað að gefa innsýn í þá öflugu fjölbreyttu starfsemi sem þrífst á Vestfjörðum og gefa þeim sem standa í ólíkum rekstri kost á að koma saman og kynna bæði sín á milli og út á við til gesta hvað það er sem verið er að fást við.
Við viljum gjarnan að vestfirsk list fái að njóta sín á sýningunni og köllum við eftir verkum frá listafólki á svæðinu til að skreyta rýmið með á meðan á sýningunni stendur. Leitum við eftir vegghengdum listaverkum, ljósmyndum eða skúlptúrum eða öðru því sem myndi sóma sér vel á sýningunni.
Heiðrún Björk Jóhannsdóttir sér um sýningarhönnun og má senda henni tillögur að verkum til að sýna úr ykkar fórum. Fram þarf að koma stærð á viðkomandi verkum. Netfang: heidrunbjork@icloud.com