Fara í efni

Púkinn stekkur af stað

Fréttir Verkefni Áhersluverkefni sóknaráætlunar Sóknaráætlun Vestfjarða Barnamenningarhátíðin Púkinn Ungmennaráð Vestfjarða Farsældarráð Vestfjarða Fjársjóður fjalla og fjarða Gullkistan Vestfirðir 2025 Jú víst! Kraftur í Kaldrana

Í dag hefst Púkinn, barnamenningarhátíð Vestfjarða. Þetta er í fjórða skiptið sem hátíðin er haldin og Púkinn eflist með hverju árinu. Þema hátíðarinnar í ár er hafið, enda tengjast flestir viðburðir hafinu og lífríki þess á einhvern hátt.

Viðamestu viðburðirnir eru Sólmyrkvaleikarnir, sem hönnunarteymið Þykjó ásamt Sigga&Ingibjörgu úr Þjóðsögukistunni og Stjörnu-Sævari bera hitann og þungann af. Þetta verkefni er ætlað öllum krökkum á miðstig á Vestfjörðum. Þar er blandað saman vísindum og listum, börnin fræðast um áhrif og eðli sólmyrkvans í sumar og túlka það á ákaflega fallegan myndrænan og tónrænan hátt. Þetta verkefni er styrkt af Vísindasmiðju Háskóla Íslands og Barnamenningarsjóði.

Fimmbíó er afrakstur af kvikmyndanámskeiðum sem voru haldin í öllum grunnskólum Vestfjarða fyrir nemendur á unglingastigi. Erlingur Óttar Thoroddsen var aðalleiðbeinandi og á Púkanum verða myndirnar sem urðu til sýndar í bíóhúsum Vestfjarða á sérstökum hátíðasýningum. Þetta verkefni er unnið í samstarfi við RIFF og er styrkt af Erasmus+

List fyrir alla sendir verkefni sem heitir Álfar og Irmlar í alla skóla á Vestfjörðum. Þetta er sögustund þar sem fortíð og nútíð er blandað saman í tali og tónum. Það er Dúó Stemma sem ferðast með þessa fallegu sýningu og sýnir fyrir yngstu börnin í grunnskóla.

Hér má sjá dagskrá hátíðarinnar.