Fara í efni

Ert þú smáframleiðandi matvæla á Vestfjörðum?

Fréttir Westfjords Food

Með breyttum neysluvenjum, kröfum um rekjanleika, sjálfbærni og beinni tengingu við framleiðendur, skapast möguleikar fyrir vestfirska smáframleiðendur að sækja enn meira fram.

Vestfjarðastofa býður framleiðendum að taka þátt í verkefni sem hefur það að markmiði að bæta markaðsstöðu og auka sýnileika vestfirskra matvæla.

 

Hvað felst í verkefninu?

  • Þátttaka í vinnustofu um vestfirska matarmenningu
  • Ljósmyndari kemur til hvers framleiðanda og tekur myndir af afurðunum
  • Aðstoð við að "segja söguna" um framleiðsluna
  • Hver og einn framleiðandi fær handleiðslu í stafrænni markaðssetningu með áherslu á samfélagsmiðla

Hvað þarf til að sækja um?

  • Leyfi til matvælaframleiðslu
  • Í umsókn skal lýsa afurðum fyrirtækisins og framtíðarsýn

Hvað kostar að taka þátt?

  • Verkefnið er smáframleiðendum að kostnaðarlausu en með því að taka þátt skuldbinda þátttakendur sig til þátttöku í vinnustofu um matarmenningu, til að setja niður "sögu" um framleiðsluna, taka á móti ljósmyndara og til að nýta myndirnar í markaðssetningu á samfélagsmiðlum. 
  • Þátttakendur skila einnig frásögn af þátttöku sinni í verkefninu sem má birta ásamt einni mynd á vefsíðu eða samfélagsmiðlum Vestfjarðastofu þegar verkefni lýkur

 

Umsóknareyðublað má finna á vestfirdir.is/westfjordsfood

Upplýsingar veitir Þórkatla Ólafsdóttir, thorkatla@vestfirdir.is

Umsóknarfrestur rennur út á hádegi 6. júlí 2020