Líflegur fundur ferðamálaráðherra á Ísafirði
Í dag var Lilja Dögg Alfreðsdóttir ferðamálaráðherra með umræðu- og kynningarfund um ferðamálastefnu og aðgerðaáætlun til 2030 í Edinborgarhúsinu á Ísafirði. Þar var kynnt sú vinna sem hefur átt sér stað við að gera aðgerðabundna ferðamálastefnu – þá fyrstu sinnar tegundar hér á landi.
04. mars 2024