Fara í efni

Viltu vita meira um framtíð Vestfjarða? Opnir fundir um kynningartillögu Svæðisskipulags Vestfjarða

Kynningartillaga Svæðisskipulags Vestfjarða 2025-2050 er nú komin í Skipulagsgátt þar sem hún verður opin til umsagnar fram til 7. apríl. Sveitarfélögin átta á Vestfjörðum hafa samþykkt tillöguna en á kynningartímabilinu er kallað eftir athugasemdum frá Vestfirðingum og öðrum hagaðilum. Svæðisskipulagsnefnd mun síðan fara yfir athugasemdir og leggja til breytingar eftir því sem við á í samráði við sveitarfélögin, áður en lokatillaga verður lögð fram.

Kynningartillaga Svæðisskipulags Vestfjarða verður til umfjöllunar á opnum fundum sem hér segir:

24. febrúar: Hnyðja á Hólmavík
25. febrúar: Edinborgarhúsið á Ísafirði
26. Febrúar: Félagsheimili Patreksfjarðar

Fundirnir hefjast klukkan 17:00 og eru öllum opnir.

Vinna við gerð svæðisskipulags fyrir Vestfirði í heild sinni hófst haustið 2023 er Svæðisskipulagsnefnd var komið á fót. Í maí 2024 voru haldnir samráðsfundir um alla Vestfirði þar sem íbúum var boðið að borðinu til að hafa áhrif á innihald skipulagsins og tóku fjölmörg þátt í þeirri vinnu. Í júní í fyrra var kynnt til umsagnar svokölluð vinnslutillaga, sem byggði á efni íbúafundanna og margvíslegum greiningum og efni sem unnið var á þeim tíma. Unnið var úr umsögnum og lögð upp tillaga sem sveitarstjórnir á Vestfjörðum samþykktu að auglýsa nú í desember s.l..

Tillagan sem nú liggur fyrir í Skipulagsgátt er því niðurstaða af viðtæku íbúasamráði og greiningarvinnu, og nú er hægt er að gera athugasemdir sem áður segir til og með 7. apríl 2026.

Til að kynna sér enn betur Svæðisskipulag Vestfjarða 2025-2050 er hægt að fara inn á þessa síðu