21. október
Viðburðir
Uppbyggingarsjóður Vestfjarða hefur opnað fyrir umsóknir. Hægt er að sækja um styrki til verkefna á sviði menningar, nýsköpunar og atvinnuþróunar. Einnig geta menningarstofnanir sótt um stofn- og rekstrarstyrki, séu þær með starfsemi á heilsársgrundvelli.
Uppbyggingarsjóður Vestfjarða styrkir nýsköpun, uppbyggingu atvinnulífs og menningarstarf á Vestfjörðum.
Umsóknargluggi vegna verkefna ársins 2027 verður opnaður 17. september kl.14:00 og lokað 21. október kl. 14:00. Frekari upplýsingar er að finna hér.