Endurgreiðsla til bókaútgefenda á hluta kostnaðar vegna útgáfu bóka á íslensku sem eru aðgengilegar almenningi með opinberri sölu, láni eða leigu.
Endurgreiðsla til kostnaðar vegna útgáfu bóka á íslensku sem eru aðgengilegar almenningi með opinberri sölu, láni eða leigu.
Hverjir geta sótt um?
Virðisaukaskattskyldir bókaútgefendur.
Umsækjandi sé fjárhagslega ábyrgur fyrir útgáfu bókar sem sótt er um. Umsækjandi skal vera í skilum við hið opinbera og leggja fram staðfestingu sem fæst á þjónustuvef RSK.
Hvernig er sótt um?
Sótt er um í umsóknarkerfi Rannís.
Hægt er að leggja inn umsóknir um endurgreiðslu hvenær sem er innan níu mánaða frá útgáfudegi.
Umsækjandi getur unnið með umsókn og bætt við upplýsingum þar til öll gögn eru til staðar.
Fyrirspurnir sendist á ebk@rannis.is
Áður en umsókn er send inn er mikilvægt að umsækjandi kynni sér handbók sjóðsins.