Fara í efni

Umsóknarfrestur - Samfélagsstyrkir Landsbankans 2026

Landsbankinn veitir tuttugu milljónir króna í samfélagsstyrki á hverju ári. Samfélagsstyrkjunum er ætlað að styðja við verkefni á ýmsum sviðum, þar á meðal á sviði mannúðarmála, menningar og lista, menntunar, rannsókna og vísinda, forvarnar- og æskulýðsstarfs og sjálfbærni.

Umsóknarferlið
Sérstök dómnefnd, skipuð fagfólki utan bankans, fer yfir umsóknirnar og er umsóknarferlið gagnsætt og faglegt.

Mikilvægt er að vanda vel framsetningu umsókna og frágang þeirra. Umsækjendur eru hvattir til að senda öll þau gögn sem geta komið að gagni við mat á umsóknum og gera þarf skýra grein fyrir því hvernig styrk yrði varið.

Umsóknarfrestur rennur út 31. október 2026.

 

Verkefni sem koma einkum til greina eru:

  • Starf mannúðarsamtaka og líknarfélaga
  • Menning og listir
  • Menntamál, rannsóknir og vísindi
  • Forvarna- og æskulýðsstarf
  • Sjálfbærni

Verkefni sem alla jafna ekki koma til greina:

  • Starfsemi íþróttafélaga
  • Almenn bókaútgáfa og gerð almenns námsefnis
  • Utanlandsferðir listamanna og listahópa 

 Sækja um styrk