Fara í efni

Umsóknarfrestur - Matvælasjóður

Matvælasjóður auglýsir eftir umsóknum.  Umsóknarfrestur er til og með 27. febrúar 2026.

Hlutverk Matvælasjóðs er að styrkja þróun og nýsköpun við framleiðslu og vinnslu íslenskra matvæla og hliðarafurða þeirra úr landbúnaðar- og sjávarafurðum á landsvísu. Áhersla er á nýsköpun, sjálfbærni, verðmætasköpun og samkeppnishæfni íslenskrar matvæla um land allt. Markmið sjóðsins er að ná til verkefna á öllum stigum, allt frá hugmyndum til markaðssetningar og hagnýtra rannsókna.

Sjóðurinn veitir styrki í fjórum flokkum:

  • Bára styrkir verkefni á hugmyndastigi, úr hugmynd yfir í verkefni.
  • Kelda styrkir rannsóknaverkefni sem miða að því að skapa nýja þekkingu.
  • Afurð styrkir verkefni sem komin eru af hugmyndastigi, eru ekki tilbúin til markaðssetningar, en leiða af sér afurð.
  • Fjársjóður styrkir sókn á markaði, hjálpar fyrirtækjum að koma sínum verðmætum á framfæri.

Umsækjendur geta sótt um hér.
Heimasíða Matvælasjóðs

Handbók Matvælasjóðs 2026