Fara í efni

Umsóknarfrestur - Loftslagssjóður

Loftslagssjóður er sérstakur sjóður sem heyrir undir umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra. Hlutverk sjóðsins er að styðja við nýsköpunarverkefni á sviði loftslagsmála og verkefni sem lúta að kynningu og fræðslu um áhrif loftslagsbreytinga. Styrkir til nýsköpunarverkefna eru ætlaðir m.a. til þess að styrkja rannsóknir og þróunarstarf í tengslum við aðlögun og innleiðingu á nýjum loftslagsvænum tæknilausnum og hönnun.

Hvert er markmiðið?

Loftslagssjóður er samkeppnissjóður sem veitir styrki samkvæmt almennum áherslum stjórnar Loftslagssjóðs og á grundvelli faglegs mats á gæðum verkefna.

Hvað er styrkt?

Sjóðurinn styrkir verkefni sem draga úr losun eða hafa áhrif á samdrátt í losun. Styrki Loftlagssjóðs má nota til að samfjármagna alþjóðlega styrkt verkefni.

Áhersla verður lögð á verkefni sem:

  • skila samdrætti í losun og sem stuðla að sjálfstæðu landsmarkmiði Íslands um að draga úr losun á beinni ábyrgð Íslands um 55% (miðað við árið 2005) fyrir 2030. Áhersla þessi er í samræmi við markmið ríkisstjórnar í stjórnarsáttmála.

  • hagnýta grunnþekkingu sem þegar er til staðar, hafa möguleika á að nýtast sem víðast í samfélaginu og beinast að aðilum sem hafa talsverða möguleika á að draga úr losun.

Verkefni sem ekki verða styrkt í þessari úthlutun:

  • kynningar- og fræðsluverkefni

Umsóknarfrestur

Næsti umsóknarfrestur er 6. desember 2022 kl. 15:00.

Frekari upplýsingar eru á Rannís - Loftlagssjóður