Fara í efni

Umsóknarfrestur - Listamannalaun

Markmið Listamannalauna er að efla listsköpun í landinu. Alþingi veitir árlega fé af fjárlögum til þess að launa listamenn í samræmi við lög

Umsóknartímabil vegna listamannalauna 2023.

Opið er fyrir umsóknir til 3. október 2022 kl: 15:00

Launasjóðir og greiðslur

Starfslaun listamanna eru veitt úr sex sjóðum:

  • launasjóði hönnuða
  • launasjóði myndlistarmanna
  • launasjóði rithöfunda
  • launasjóði sviðslistafólks
  • launasjóði tónlistarflytjenda
  • launasjóði tónskálda

Umsjón með sjóðunum er í höndum stjórnar listamannalauna.

Starfslaun listamanna eru greidd mánaðarlega. Þau sem njóta starfslauna í sex mánuði eða lengur skulu ekki gegna fullu starfi meðan á starfslaunatímanum stendur.

Fjárhæð starfslauna skal koma til endurskoðunar við afgreiðslu fjárlaga ár hvert með tilliti til þróunar launa, verðlags og efnahagsmála [ 4. gr. laga 57/2009].

Hafi umsækjandi hlotið starfslaun áður, verður umsókn því aðeins tekin til umfjöllunar að áfanga- eða lokaskýrslu vegna fyrri starfslauna hafi verið skilað til stjórnar listamannalauna, skv. 7. gr. reglugerðar um listamannalaun.

Fyrir hverja?

Sjálfstætt starfandi hönnuði, myndlistarmenn, rithöfunda, sviðslistafólk, tónlistarflytjendur og tónskáld. Sjá nánar undir Spurt og svarað.

Frekari upplýsingar má finna hjá Rannís - HÉR