Fara í efni

Umsóknarfrestur - Jöfnunarstyrkur til náms

Jöfnunarstyrkur til náms
Umsóknarfrestur á vorönn 2023 er til 15. febrúar n.k.

Nemendur á framhaldsskólastigi sem ekki njóta lána hjá Menntasjóði námsmanna geta sótt um styrk til jöfnunar á námskostnaði. Styrkurinn ræðst af búsetu og er fyrir þá sem að stunda nám fjarri heimili sínu.

  • Dvalarstyrkur (fyrir þá sem að dvelja fjarri lögheimili og fjölskyldu
    sinni vegna náms).
  • Akstursstyrkur (fyrir þá sem sækja nám frá lögheimili
    fjölskyldu fjarri skóla).

Nemendur geta sótt um jöfnunarstyrkinn með rafrænum skilríkjum á Mitt Lán sem aðgengilegt er í gegnum heimasíðu okkar www.menntasjodur.is eða island.is.
Nemendur og aðstandendur þeirra eru hvattir til að kynna sér reglur um styrkinn á vef Menntasjóðs námsmanna (www.menntasjodur. is).

Menntasjóður námsmanna
Námsstyrkjanefnd