Fara í efni

Umsóknarfrestur - Íþróttasjóður

Styrkir Íþróttasjóðs eru ætlaðir íþrótta- og ungmennafélögum á landinu til að bæta aðstöðu til íþróttaiðkana. Einnig eru styrkir til útbreiðslu- og fræðsluverkefna.
Þá eru veittir styrkir til að stunda rannsóknir á ýmsum þáttum íþróttastarfsemi í landinu.

Markmið sjóðsins er að stuðla að nýsköpun og eflingu íþróttastarfs fyrir börn og unglinga, efla þekkingu þjálfara og leiðbeinenda í íþróttastarf, auka gildi íþróttastarfs í forvörnum og auka veg og virðingu íþróttastarfs í samfélaginu.

Umsóknarfrestur er 1. október 2026, kl 15:00 að íslenskum tíma.

Styrkir Íþróttasjóðs eru ætlaðir íþrótta- og ungmennafélögum á landinu til að bæta aðstöðu til íþróttaiðkana. Einnig eru styrkir til útbreiðslu- og fræðsluverkefna.

Þá eru veittir styrkir til að stunda rannsóknir á ýmsum þáttum íþróttastarfsemi í landinu.

 

Hverjir geta sótt um?

Íþrótta- og ungmennafélög og þau sem starfa að útbreiðslu- og fræðsluverkefnum á sviði íþrótta. Einnig fyrir þau sem starfa að rannsóknum á sviði íþrótta og lýðheilsu.

 

Hvernig er sótt um?

  • Umsókn um styrk úr Íþróttasjóði skal skila í gegnum rafrænt umsóknarkerfi Rannís.

  • Til að nálgast umsóknarformið þarf að tengjast umsóknarkerfi Rannís með rafrænum skilríkjum.

  • Mikilvægt er að hafa í huga að við gerð kostnaðaráætlunar að í eyðublaði er átt við heildarkostnað verkefnisins. Ef sótt er um styrk eða framlög til annarra skal tilgreina það í umsókn.

  • Mikilvægt er að fara vel yfir kostnaðaryfirlit áður en umsókn er send inn.

  • Lágmarksstyrkur til verkefna er 250 þúsund krónur.

 

Svör við spurningum

Tekið er á móti fyrirspurnum í netfanginu ithrottasjodur@rannis.is eða í síma 515 5833. Umsjónarmaður sjóðsins er Andrés Pétursson.

 

Umsækjendur eru hvattir til að byrja tímanlega og senda ekki umsókn á síðasta degi.

Sækja um