Fara í efni

Umsóknarfrestur - Íþróttasjóður

Markmið sjóðsins er að stuðla að nýsköpun og eflingu íþróttastarfs fyrir börn og unglinga, efla þekkingu þjálfara og leiðbeinenda í íþróttastarf, auka gildi íþróttastarfs í forvörnum og auka veg og virðingu íþróttastarfs í samfélaginu

Styrkirnir eru ætlaðir íþrótta- og ungmennafélögum á landinu til að bæta aðstöðu til íþróttaiðkana. Einnig eru styrkir til útbreiðslu- og fræðsluverkefna, að þessu sinni verður horft sérstaklega til verkefna sem stuðla að hreyfingu fyrir alla, sérstaklega ungu fólki. Þá eru veittir styrkir til að stunda rannsóknir á ýmsum þáttum íþróttastarfsemi í landinu.

Vakin er athygli á því að sama íþróttafélag eða sama deild innan íþróttafélags sem hefur margar deildir, getur aðeins sent inn eina umsókn í hverjum umsóknarfresti.

Hverjir geta sótt um?

Öll íþrótta- og ungmennafélög í landinu. Einnig þeir sem stunda rannsóknir á sviði íþrótta og lýðheilsu.

Hvað er styrkt?

Veita má framlög til eftirfarandi verkefna á sviði íþrótta;

  1. Sérstakra verkefna á vegum íþróttafélaga og samtaka þeirra sem miða að því að bæta aðstöðu til íþróttaiðkana
  2. Áhersla á fræðslu um gildi hreyfingar fyrir alla
  3. Fjölbreytt verkefni sem hvetja ungt fólk sérstaklega til að taka þátt og hreyfa sig reglulega
  4. Íþróttarannsókna
  5. Verkefna samkvæmt 13. gr. íþróttalaga

Skilyrði úthlutunar

Verkefnin þurfa að falla að markmiðum Íþróttalaga. Þar segir að íþróttir séu hvers konar líkamleg þjálfun er stefnir að því að auka líkamlegt og andlegt atgervi, heilbrigði og hreysti.

Frekari upplýsingar má finna á vef Rannís