Markmið sjóðsins er að stuðla að nýsköpun og eflingu íþróttastarfs fyrir börn og unglinga, efla þekkingu þjálfara og leiðbeinenda í íþróttastarf, auka gildi íþróttastarfs í forvörnum og auka veg og virðingu íþróttastarfs í samfélaginu
Styrkirnir eru ætlaðir íþrótta- og ungmennafélögum á landinu til að bæta aðstöðu til íþróttaiðkana. Einnig eru styrkir til útbreiðslu- og fræðsluverkefna, að þessu sinni verður horft sérstaklega til verkefna sem stuðla að jafnrétti í íþróttum. Þá eru veittir styrkir til að stunda rannsóknir á ýmsum þáttum íþróttastarfsemi í landinu.
Hverjir geta sótt um?
Öll íþrótta- og ungmennafélög í landinu. Einnig þeir sem stunda rannsóknir á sviði íþrótta og lýðheilsu.
Vakin er athygli á því að sama íþróttafélag eða sama deild innan íþróttafélags sem hefur margar deildir, getur aðeins sent inn eina umsókn í hverjum umsóknarfresti.
Hvað er styrkt?
Veita má framlög til eftirfarandi verkefna á sviði íþrótta;
- Sérstakra verkefna íþróttafélaga og samtaka þeirra sem miða að því að bæta aðstöðu til íþróttaiðkana.
- Útbreiðslu- og fræðsluverkefna og skal einkum lögð áhersla á verkefni sem uppfylla einhver eftirfarinna skilyrða;
-
Stuðla að nýsköpun og eflingu íþróttastarfs fyrir börn og unglinga og sérstök áhersla verður að þessu sinni á verkefni sem stuðla að jafnrétti í íþróttum
- Eflingu þekkingu þjálfara og leiðbeinenda í íþróttastarfi
- Auka gildi íþróttastarfs í forvörnum
- Auka veg og virðingu íþróttastarfs í samfélaginu
-
- Íþróttarannsókna
- Verkefnum samkvæmt 13. gr. íþróttalaga
Skilyrði úthlutunar
Verkefnin þurfa að falla að markmiðum Íþróttalaga. Þar segir að íþróttir séu hvers konar líkamleg þjálfun er stefnir að því að auka líkamlegt og andlegt atgervi, heilbrigði og hreysti.
Frekari upplýsingar má finna á heimasíðu Rannís - HÉR