Fara í efni

Umsóknarfrestur - Fræðslu - og verkefnasjóður UMFÍ

Fræðslu- og verkefnasjóður

Markmið sjóðsins er að styrkja félags- og íþróttastarf ungmennafélagshreyfingarinnar í samræmi við stefnu UMFÍ, m.a. með því að auka menntun og þekkingu félaga innan hreyfingarinnar á íþróttagreinum, þjálfun í félagsmálum og félagsstarfi.

Rétt til umsóknar úr sjóðnum eiga sambandsaðilar UMFÍ, aðildarfélög sem eru virk í starfi og deildir innan þeirra.

Áherslur í úthlutun

Í samræmi við reglugerð sjóðsins leggur sjóðsstjórn áherslu á að veita styrki til:

  • Fræðslu- og forvarnaverkefna sem eru til þess fallin að auka þekkingu og fagmennsku innan héraðs, félags og/eða deildar.
  • Þjálfara- og/eða dómaranámskeiða.
  • Verkefna sem stuðla að aukinni þekkingu og varðveislu á menningu og sögu héraðs, félags og/eða héraðs.
  • Verkefna og/eða viðburða sem hafa það að markmiði að efla þjálfun forystufólks, leiðbeinenda og sjálfboðaliða í íþróttastarfsemi.
  • Verkefni sem stuðla að stærðarhagkvæmni og samnýtingu í upplýsingatæknimálum.
Úthlutun styrkja

Athygli er vakin á því að sjóðurinn styrkir EKKI tækja-, áhalda- og búnaðarkaup, fundakostnað (þ.m.t. veitingar) og almennan rekstur félaga. Styrkur er að öllu jöfnu aldrei hærri en 400.000 kr. Sjóðsstjórn getur þó veitt hærri styrki í undantekningartilfellum.

  • Fræðslu- og forvarnaverkefni hljóta að hámarki 70% styrk gegn kvittunum með lokaskýrslu.
  • Þjálfara- og dómaranámskeið hljóta að hámarki 50% styrk gegn kvittunum með lokaskýrslu.
  • Verkefni til varðveislu sögu og menningu hljóta að hámarki 50% styrk gegn kvittunum með lokaskýrslu.
  • Verkefni og/eða viðburðir sem hafa það að markmiði að efla þjálfun forystufólks, leiðbeinenda og sjálfboðaliða í félagsmálum (fundarsköpum) hljóta að hámarki 70% styrk gegn kvittunum með lokaskýrslu.
  • Nýsköpun og/eða samstarfsverkefni sambandsaðila hljóta að hámarki 70% styrk gegn kvittunum með lokaskýrslu.

Umsækjendur geta óskað eftir rökstuðningi sjóðsstjórnar við afgreiðslu sinnar umsóknar.

Lokaskýrsla

Umsækjendur sem hljóta styrk þurfa að skila inn skýrslu á ákveðnu lokaskýrsluformi og senda til þjónustumiðstöðvar UMFÍ á netfangið umfi@umfi.is.

Umsóknarfrestir eru tveir á ári. Fyrri umsóknarfrestur er frá 1. apríl til og með 1. maí og sá seinni frá 1. október til og með 1. nóvember.

Frekari upplýsingar og umsóknarferli er að finna hér