Fara í efni

Tónlistarmiðstöð á Ísafirði

Fulltrúar Tónlistarmiðstöðvar verða á Ísafirði 24. og 25. nóvember og bjóða tónlistarfólki og öðrum sem starfa í tónlistargeiranum á Vestfjörðum upp á ráðgjöf og samtal um tækifæri og áskoranir í tónlistargeiranum.

María Rut Reynisdóttir, framkvæmdastjóri Tónlistarmiðstöðvar, og Signý Leifsdóttir, sérfræðingur, verða til viðtals í Vestfjarðastofu að Suðurgötu 12. Þar gefst tækifæri til að ræða meðal annars styrki, tónlistarútgáfu, kynningarmál, starfsþróun, samstarf og alþjóðleg tækifæri.

Tónlistarfólk, tónlistarsköpunarfólk og aðrir sem starfa innan tónlistargeirans á Vestfjörðum eru hvött til að nýta tækifærið og kynna sér þá þjónustu og stuðning sem Tónlistarmiðstöð hefur upp á að bjóða.

Staður: Vestfjarðastofa, Suðurgata 12, Ísafirði
Dagsetningar: 24. og 25. nóvember

Takmarkaður fjöldi viðtalstíma er í boði. Nánari upplýsingar og bókun viðtala má finna hér á vef Tónlistarmiðstöðvar.