Fara í efni

Skjaldborg Patreksfirði – hátíð íslenskra heimildamynda

Hvítasunnan nálgast og þá er boðið til heimildamyndaveislu á Patreksfirði. Hátíðin er viðburður hér á landi fyrir íslenska heimildamyndafagið og áhugafólk um heimildamyndir. Gestir njóta stunda í Skjaldborgarbíói þrjú vorkvöld í röð meðan á hátíð stendur.

Skjaldborg er uppskeruhátíð og eina kvikmyndahátíðin sem sérhæfir sig í að frumsýna íslenskar heimildamyndir. Reynsluboltar í faginu, byrjendur og hinn almenni áhorfandi koma saman á hátíðinni í skemmtilegu og skapandi samtali sem gegnir mikilvægu hlutverki fyrir þróun og miðlun íslenskrar heimildamyndagerðar.

Frumsýnd verða fimm heimildarverk í fullri lengd og fimm heimildastuttmyndir. Þá verða sýnd sex verk í vinnslu.

Meðal verka í fullri lengd sem verða sýnd er myndin Fuglar og menn þar sem sagt er frá hjónunum Ólafi Aðalsteinssyni og Jóhönnu Óladóttur sem hafa í yfir tvo áratugi helgað líf sitt uppbyggingu og verndun æðarvarps í hinum afskekkta Loðmundarfirði á Austfjörðum. Í firðinum, sem lagðist í eyði fyrir hálfri öld, hafa þau byggt upp eitt öflugasta varpsvæði landsins við krefjandi aðstæður.

Frekari upplýsingar um hátíðina er að finna hér.