Fara í efni

Rannís með kynningarfund um styrki Tækniþróunarsjóðs

Kynningarfundur um styrki Tækniþróunarsjóðs -fyrirtækjastyrkir og skattfrádráttur rannsókna- og þróunarverkefna

Fundurinn verður haldinn fimmtudaginn 16. febrúar nk. kl. 12:00-13:30 í streymi (Teams).

Sérfræðingur frá Rannís mun kynna opinberan stuðning til nýsköpunarverkefna á vegum Tækniþróunarsjóðs og skattfrádráttar rannsókna- og þróunarverkefna .

Fundurinn er ætlaður væntanlegum umsækjendum fyrirtækjastyrkja Tækniþróunarsjóðs, þ.a.m.:

  • einstaklingar
  • lítil og meðalstór fyrirtæki
  • háskólar
  • opinberar rannsóknastofnanir
  • opinber fyrirtæki

Fundinum verður streymt og verður hlekkur á streymi sendur þau sem skrá sig.

Skráning á fund

ATH: Getum ekki ábyrgst að hlekkur verði sendur tímanlega ef skráning er gerð með litlum fyrirvara.