Fara í efni

Pallborð unga fólksins

"Pallborð unga fólksins"
 
Ungmennaráð Vestfjarða ásamt Nemendafélagi Menntaskólans á Ísafirði heldur pallborð fyrir frambjóðendur til sveitarstjórnarkosninga í þremur stærstu sveitarfélögum á Vestfjörðum.
 
Við verðum kl. 17:00 í Bryggjusal í Edinborgarhúsinu með frambjóðendum Ísafjarðarbæjar þann 5. maí.
Við verðum kl. 17:00 í félagsheimilinu í Bolungarvík með frambjóðendum Bolungarvíkurkaupstaðar þann 6. maí.
Við verðum í Vesturbyggð þann 7. maí með frambjóðendum þar. Tími og staður verða birt fljótlega.
 
Viðburðurinn er öllum opinn, fólk á öllum aldri er hvatt til að mæta og taka ungmennin í sínu lífi með sér.
 
Hlökkum til að ræða málefni ungs fólks á Vestfjörðum!"