Styrktarsjóður Hafna Ísafjarðarbæjar 2026
Auglýst er eftir umsóknum um styrki úr styrktarsjóði Hafna Ísafjarðarbæjar fyrir árið 2026.
Markmið með sjóðum er að styrkja og bæta bæjarbraginn og eru í ár 8 milljónir til úthlutunar. Sjóðurinn er að þessu sinni þrískiptur þar sem styrkja skal viðburðahald, samfélags- eða fegrunarverkefni sem efla samfélagið í Ísafjarðarbæ.
- Viðburðir - Styrkjum er úthlutað til einstakra viðburða, eða raða viðburða sem haldnir eru í Ísafjarðarbæ árið 2026. Viðburðir mega fara fram á öllum tíma dags og öllum tímum árs. Ekki er krafa um að viðburðir séu þátttakendum að kostnaðarlausu en forgangs njóta ókeypis viðburðir. Ekki eru veittir styrkir til rekstrar‐, stofnkostnaðar‐ eða endurbóta fyrirtækjum þ.m.t. á eignum.
- Fegrunarverkefni – Verkefni sem miða að fegrun og bættu umhverfi í Ísafjarðarbæ. T.d vegglist, umhverfislist, bættar merkingar húsa og fyrirtækja. Undir þetta fellur ekki almennt viðhald fasteigna.
- Samfélagsverkefni – Uppbyggjandi og jákvæð verkefni sem nýtast samfélaginu. Styrkjunum er ætlað að styðja við framtak hópa og einstaklinga sem stuðla að farsæld, lífsgæðum og fjölbreyttu mannlífi. Svo sem starfsemi opinna frjálsra félagasamtaka sem vinna í almannaþágu árið um kring.
Hægt er að sækja um styrk að hámarki 800.000 kr. Ekki er krafist mótframlags frá umsækjan
Umsóknarfrestur er til 15. apríl kl 16:00
Nánari upplýsingar og ráðgjöf veitir Magnea Garðarsdóttir verkefnisstjóri á netfanginu magnea@vestfirdir.is
Nánar um afgreiðslu styrksins
Þegar að umsóknarfrestur er runnin út fer úthlutunarnefnd sem samanstendur af tveim aðilum frá Ísafjarðarbæ og einum frá Vestfjarðarstofu, yfir umsóknir og metur.
Styrkir úr sjóðnum eru afgreiddir eftir að samningar um styrkveitingu hafa verið undirritaðir og gegn framvísun fjárhagsáætlunar vegna þess verkefnis sem styrkurinn er veittur til. Þó er ekki krafa um fjárhagsáætlun fyrir samfélagsverkefni en þar ber að skila síðasta ársreikningi.
Endurgreiða skal veitta styrki ef fyrir liggur að þeim hefur ekki verið varið í tilgreindar framkvæmdir/verkefni og innan þeirra tímamarka sem ákveðin eru við úthlutun. Hægt er að leita til Vestfjarðastofu ef verkefnið tekur breytingum frá umsókn að framkvæmd.
Styrkþegar skulu skila Vestfjarðastofu greinargerð um ráðstöfun styrksins ásamt uppgjöri, þegar viðkomandi verkefni er að fullu lokið í samræmi við styrksamning styrkþega og Vestfjarðastofu. Einnig þarf að fylgja með þrjár ljósmyndir sem sýna hvernig verkefnið var í framkvæmd sem leyfilegt er fyrir Vestfjarðastofu og Ísafjarðarbæ að nota í kynningarefni í framtíðinni.