Fara í efni

Opið fyrir umsóknir í Lóuna

Opnað hefur verið fyrir umsóknir um styrki úr Lóu. Lóan er nýsköpunarstyrkir fyrir landsbyggðina sem hafa það hlutverk að styðja við eflingu byggða og landshluta með nýskapandi verkefnum. Styrkjunum er aðeins úthlutað til verkefna utan höfuðborgarsvæðisins í þeim tilgangi að styðja við atvinnulíf og verðmætasköpun sem byggir á hugviti, þekkingu og nýrri færni.

Lóu styrkir eru veittir verkefnum sem komin eru af byrjunarstigi samkvæmt skilgreiningu OECD þar sem nýsköpun er skilgreind sem innleiðing nýrrar eða mjög endurbættrar vöru, þjónustu eða ferils, nýttar aðferðar til markaðssetningar eða nýttar skipulagsaðferðar í viðskiptaháttum, skipulagi á vinnustað eða ytri samskiptum.

Styrkjum er úthlutað til eins árs í senn og getur hvert verkefni fengið styrk sem nemur allt að 20% af heildarúthlutun hvers árs. Heildarfjárhæð Lóu árið 2026 er 100 m.kr. 

Handbók um Lóuna er að finna hér.

Frekari upplýsingar er að finna hér.