Fara í efni

Menntaþing Vestfjarða 2026

Vestfjarðastofa ásamt Fjórðungssambandi Vestfirðinga heldur Menntaþing Vestfjarða 2026 sem fer fram þann 8. júní frá kl. 10:00-17:00 í Íþróttamiðstöðinni á Þingeyri.
Hvernig sköpum við öflugra lærdómssamfélag á Vestfjörðum?
Á Menntaþingi Vestfjarða kemur saman fólk úr skólasamfélaginu, fagfólk, stjórnendur og áhugasamir til að ræða áskoranir, tækifæri og framtíðarsýn menntunar í fjórðungnum.
 
Skráning fer fram hér: https://forms.office.com/e/29SiXyRyKE
 
Þátttaka er gjaldfrjáls, léttar veitingar verða innifaldar og rútur munu fara frá þéttbýlisstöðum á Vestfjörðum.
 
Við munum eiga gott samtal og tengslamyndun yfir kaffi og mat og endum daginn saman með pallborði, móttöku og skemmtun.
Hvort sem þú starfar í leik-, grunn-, framhaldsskóla eða háskóla, í stoðþjónustu, stjórnsýslu eða hefur einfaldlega áhuga á menntamálum, þá er þetta vettvangur fyrir samtal, innblástur og samstarf.
 
Dagskrá:
10:00 Innritun og morgunhressing
10:30 Setning þings
11:00 Ró í óróa - Streita og starfsorka: Ingibjörg Valgeirsdóttir, Saga Story House - Heilsueflandi fræðslufyrirtæki
12:00 Hádegismatur
13:00 Gæði kennslu: Kennsla og fagmennska kennara - QUINT; Anna Kristín Sigurðardóttir, prófessor við HÍ & Birna María B. Svanbjörnsdóttir, dósent við HA.
13:30 Vinnustofa: skólaþjónusta á Vestfjörðum
14:30 Kaffihlé
14:50 Málstofur: skólastarf á Vestfjörðum
16:00 Pallborð
16:45 Móttaka & skemmtun
 
Hlökkum til að sjá þig á Þingeyri!