6. maí kl. 08:30-09:15
Grunnskólinn á Bíldudal
Dísa og Steef eru hljóðfæraleikarar og kalla sig Dúó Stemma. Þau spila á fullt af venjulegum hljóðfærum eins og trommur, klarínett, víólu en líka á mjög skrýtna og skemmtilega hljóðgjafa eins og steina, hrossabein, plastleikföng,ofl. og kíkja inn í fortíðina í tali og tónum.
Þau munu segja krökkum frá álfaheiminum en líka að segja þeim frá glænýjum verum sem kallast Irmlar. Eru þeir nútíma álfar? Krakkarnir fá að taka þátt í þessu ævintýri með þeim.
Það er List fyrir alla sem kemur með þennan viðburð á Púkann!
Sýnt í Grunnskólanum á Bíldudal 6.maí kl.8:30.