Kynningarfundur um styrki úr Framkvæmdasjóði ferðamannastaða
Ferðamálastofa boðar til kynningarfundar fyrir væntanlega umsækjendur í Framkvæmdasjóð ferðamannastaða fimmtudaginn 16. október kl. 13:00. Fundurinn fer fram á Teams og er öllum opinn sem hyggjast sækja um styrki úr sjóðnum.
Framkvæmdasjóður ferðamannastaða veitir styrki til framkvæmda á ferðamannastöðum og -leiðum í eigu eða umsjón sveitarfélaga og einkaaðila. Umsóknarfrestur vegna framkvæmda á árinu 2026 er til 4. nóvember næstkomandi.
Á fundinum verður farið yfir:
-
hvaða verkefni eru styrkhæf (og hver ekki),
-
umsóknarferlið og umsóknareyðublað,
-
gæðamat sjóðsins og nýtt gæðamatsblað,
-
og hvernig sótt er um styrk.
Skráning á fundinn fer fram hér:
Smelltu hér til að skrá þig á Teams-fundinn
Nánari upplýsingar um umsóknarferlið má finna á vef Ferðamálastofu:
ferdamalastofa.is/umsoknir