Fara í efni

Kanínur um borð

Langar þig að læra að surfa eins og kanína? Kanntu að gera kanínusplitt? Hvað með að synda kanínusund?

Þú munt læra allt þetta og margt fleira á námskeiðinu okkar Kanínur um borð!Kanínur um borð! er dansnámskeið fyrir krakka á aldrinum 6-12 ára.

Á námskeiðinu munum við fara í leiki og gera æfingar sem eru innblásnar af öldum og hreyfingum hafsins og í lok námskeiðsins lærum við sérstakan haf-kanínu-dans og allir dansa saman!