Fara í efni

Hringferð Samtaka atvinnulífsins - Rjúfum vítahringinn

Samtök atvinnulífsins fara í hringferð um landið undir yfirskriftinni „Rjúfum vítahringinn“. Á opnum fundum og í heimsóknum verður rætt um stöðu atvinnulífsins og þær aðgerðir sem þarf til að ná aftur stöðugleika í efnahagslífinu.

Með hringferðinni vill SA draga fram hvernig hægt er að styrkja samkeppnishæfni, bæta rekstrarskilyrði og skapa grundvöll fyrir aukin lífsgæði um allt land. Á fundunum verður lögð áhersla á opna umræðu um áskoranir og tækifæri á hverjum stað.

Hringferðin er liður í því að byggja upp sameiginlegan skilning á því hvað þarf til að rjúfa vítahring óstöðugleika og skapa sterkari grunn fyrir íslenskt atvinnulíf.

Þann 11. júní verðum við í Rögnvaldarsal í Edinborgarhúsinu. Húsið opnar kl. 9:15.

Skráning hér