Fara í efni

Framtíðarmöguleikar Breiðafjarðar - leit að jafnvægi milli verndar og nýtingar

Framtíðarmöguleikar Breiðafjarðar - leit að jafnvægi milli verndar og nýtingar

Athugið breyttar tímasetningar!

Kynnt verður verkefni, sem hófst árið 2022 um forsendugreiningu fyrir verndun Breiðafjarðar með tilliti til byggðaþróunar og sjálfbærrar nýtingar. Markmið fundarins er að heyra sjónarmið íbúa og hagaðila, stýrihópi verkefnisins til upplýsinga, en hann mun síðan gera tillögur til umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra.

Upplýsinga- og umræðufundir verða haldnir á þremur stöðum við Breiðafjörð:

  • Mánudaginn 11. mars, kl. 17 - 19.30 á Fosshóteli í Stykkishólmi.
  • Mánudaginn 25. mars, kl. 17 - 19.30 í Dalahóteli, Laugum í Sælingsdal.
  • Þriðjudaginn 26. mars, kl. 17 - 19.30 á Félagsheimilinu Birkimel á Barðaströnd.

Dagskrá (sjá skjöl í virkum hlekkjum):

Inngangur og stöðugreining: Sigríður Finsen, formaður stýrihóps

Hagrænt virði Breiðafjarðar: Vífill Karlsson, hagfræðingur hjá SSV

Sviðsmyndagreining KPMG: Aðalsteinn Óskarsson, Fjórðungssambandi Vestfirðinga og Páll S. Brynjarsson, Samtökum sveitarfélaga á Vesturlandi

Drög að tillögum stýrihóps kynnt

Umræður í litlum hópum

Samantekt niðurstaðna

Boðið verður upp á kaffiveitingar.

Fundaumsjón: Sigurborg Kr. Hannesdóttir, hjá ILDI.

Sjá meira um verkefnið hér