3. febrúar kl. 12:00-13:00
Viðburðir
Erindi Febrúarmánuðar í Forvitnum frumkvöðlum er Fjármögnunarmöguleikar nýsköpunar. Í brúnni verður kanónan Svava Björk Óladóttir sem fer yfir fjármögnunarmöguleika sprotafyrirtækja. Svava Björk er vel þekkt í nýsköpunarumhverfinu, hún er Nýsköpunarstjóri hjá Háskólanum á Akureyri, Stofnandi RATA og IceBAN og englafjárfestir. Hér má lesa frábært viðtal við Svövu Björk sem birtist á Vísi á dögunum.
Viðburðurinn er rafrænn og þátttakendum að kostnaðarlausu en áhugasamir þurfa að skrá sig hér: https://luma.com/82qxll8g
Um fræðsluhádegi landshlutasamtakanna
- Fyrsta þriðjudag hvers mánaðar
- Fyrsta þriðjudag hvers mánaðar
Landshlutasamtökin: Austurbrú, SASS, SSNE, SSNV, SSS, SSV og Vestfjarðarstofa standa að mánaðarlegum fræðsluerindum fyrsta þriðjudag í mánuði. Fjölbreytt fræðsla í boði fyrir frumkvöðla og önnur áhugasöm um nýsköpunarsenuna. Fræðsluhádegin eru öllum opin og að kostnaðarlausu! Nauðsynlegt er að skrá sig til að fá fundarboð.
Erindin verða haldin á Teams og hefjast þau kl.12. Ráðgert að hvert erindi verði ekki lengra en 45 mínútur. Í kjölfar hvers erindis gefst kostur á að leggja fram spurningar.
Hvað eru landshlutasamtökin?
Öll sveitarfélög á Íslandi eru aðilar að landshlutasamtökunum, en Landshlutasamtök sveitarfélaga eru hagsmunasamtök sveitarfélaga á tilgreindum starfssvæðum. Meginhlutverk allra landshlutasamtaka er að vinna að sameiginlegum hagsmunamálum.
Öll sveitarfélög á Íslandi eru aðilar að landshlutasamtökunum, en Landshlutasamtök sveitarfélaga eru hagsmunasamtök sveitarfélaga á tilgreindum starfssvæðum. Meginhlutverk allra landshlutasamtaka er að vinna að sameiginlegum hagsmunamálum.