Fara í efni

Fjöruverur

Hefurðu gaman af smádýrum úr fjörunni og vilt vita meira um þau? Finnst þér gaman að lita og teikna? Cristian frá Náttúrustofunni sýnir dýr úr fjörunni og leyfir okkur að skoða í víðsjá svo við sjáum þau betur. Hann vinnur við að rannsaka náttúruna og getur því svarað ýmsum spurningum ef þig langar að vita meira. Hægt verður að teikna og mála dýrin og einnig geturðu teiknað furðudýr úr pörtum margra dýra með hjálp ljósaborðs.

Mættu þegar þér hentar milli 14 og 17. Bókasafnið í Bolungarvík.