Fara í efni

Farsældarverðlaun 2026 - Tilnefningar

Hver gerir líf barna og fjölskyldna á Vestfjörðum betra?
 
Þekkir þú einstakling sem sýnir einstaka umhyggju, skapar tækifæri eða leggur sig sérstaklega fram fyrir börn og fjölskyldur? Nú gefst tækifæri til að þakka fyrir það framlag!
 
Farsældarráð Vestfjarða óskar eftir tilnefningum til nýrra verðlauna fyrir framúrskarandi framlag í þágu barna og fjölskyldna á Vestfjörðum.
 
Tilnefna má einstakling sem býr eða starfar á Vestfjörðum og hefur haft jákvæð áhrif í gegnum starf sitt, sjálfboðastarf eða þátttöku í samfélaginu. Framlagið getur verið stórt og sýnilegt eða falist í hljóðlátri umhyggju og stuðningi sem skiptir aðra miklu máli.
 
Öll geta tilnefnt – börn, ungmenni og fullorðnir. Segðu okkur hvern þú vilt tilnefna og lýstu með dæmum hvernig viðkomandi hefur skipt máli fyrir börn og fjölskyldur. Ekki láta viðkvæmar persónuupplýsingar um börn eða fjölskyldur fylgja tilnefningunni.
 
Valnefnd skipuð starfsfólki Vestfjarðastofu og Barna- og fjölskyldustofu metur tilnefningar með aðkomu Ungmennaráðs Vestfjarða. Fjöldi tilnefninga ræður ekki úrslitum.
 
Eftirfarandi viðmið eru notuð við val á verðlaunhafa:
  • Áhrif: Framlagið hefur skipt máli fyrir líðan, aðstæður eða tækifæri barna og fjölskyldna.
  • Umhyggja og inngilding: Viðkomandi stuðlar að því að börn og fjölskyldur upplifi stuðning, tilheyri samfélaginu og fái að taka þátt.
  • Jöfn tækifæri og þátttaka: Einstaklingurinn hefur dregið úr hindrunum eða stuðlað að því að fleiri geti tekið þátt og fengið stuðning.
  • Frumkvæði og eftirfylgni: Einstaklingurinn hefur sýnt sérstakt frumkvæði, elju eða útsjónarsemi og fylgt góðum hugmyndum eftir.
Verðlaunin verða afhent á Farsældarþingi Vestfjarða þann 1. desember 2026.
 
 
Tilnefningarfrestur: 13. nóvember 2026

 

Hjálpumst að við að gera góða fólkið í kringum okkur sýnilegt!