Fara í efni

Farsældarþing Vestfjarða:Það vaxa blóm fyrir vestan

Farsældarþing Vestfjarða: Það vaxa blóm fyrir vestan
 
Hvað gerir Vestfirði að góðum stað til að alast upp á og hvernig getum við látið enn fleira gott vaxa?
 
Farsældarþing Vestfjarða verður haldið þriðjudaginn 1. desember 2026 í Logni á Hótel Ísafirði, á sjálfan fullveldisdaginn, undir yfirskriftinni „Það vaxa blóm fyrir vestan“.
 
Á þinginu beinum við sjónum að styrkleikum vestfirskra samfélaga í málefnum barna og fjölskyldna. Við deilum góðum dæmum, sækjum innblástur hvert til annars og horfum til þess hvernig við getum saman skapað börnum og ungmennum skilyrði til að blómstra.
 
Á þinginu verða Farsældarverðlaun Vestfjarða afhent, þar sem einstaklingur verður heiðraður fyrir framúrskarandi framlag í þágu barna og fjölskyldna á Vestfjörðum.
 
Þinginu lýkur með undirritun sameiginlegra aðgerða Farsældarráðs Vestfjarða, sem marka næstu skref í samstarfi um farsæld barna og fjölskyldna í landshlutanum.
 
Staður: Logn á Hótel Ísafirði
Dagsetning: Þriðjudagur 1. desember 2026
Tími: Kl. 12:30–16:00. Hádegisverður hefst kl. 12:30 og formleg dagskrá kl. 13:15.
 
Nánari dagskrá verður birt fljótlega.

 

Taktu daginn frá og vertu með að hlúa að því sem vex fyrir vestan!