Þriðjudaginn 18. nóvember verður málþingið Ég bý í sveit haldið á Laugum í Sælingsdal um leiðir til byggðafestu á sauðfjárræktarsvæðum Dalabyggðar, Stranda og Húnaþings vestra. Þar verður fjallað um byggðaþróun og nýsköpun auk þess sem flutt verða erindi um áhugaverð nýsköpunarverkefni á svæðinu og möguleika til framtíðar.
Á dagskrá eru eftirfarandi erindi:
Leiðir til byggðafestu - Hlédís Sveinsdóttir og Björn Bjarnason
Byggðaþróun - Torfi Jóhannesson -
Virðisauki heima á hlaði - Þorgrímur Guðbjartsson, Erpsstöðum
Kolefniseiningar - Hjörleifur Finnsson
Hvað dregur ungt fólk í dreifbýli? - Steinþór Logi Arnarsson
Urður ullarvinnsla - Ingibjörg Þóranna Steinudóttir
Sniglarækt - Sigurður Líndal
Lífræn grænmetisrækt - Elínborg Erla Ásgeirsdóttir
Reynslusögur af nýsköpun í landbúnaði - Guðfinna Lára Hávarðardóttir
Pallborð
Þátttaka öllum opin og án endurgjalds.
Skráning á málþingið: Ég bý í sveit – Málþing um leiðir til byggðafestu
Málþingið er lokapunktur verkefnisins Leiðir til byggðafestu sem Fjórðungssamband Vestfirðinga, Samtök sveitarfélaga á Vesturlandi (SSV) og Samtök sveitarfélaga á Norðurlandi Vestra (SSNV) hafa unnið að á undanförnum misserum.