Fara í efni

Brothættar byggðir: íbúaþing á Tálknafirði

Íbúaþing Brothættra byggða í íþróttamiðstöð Tálknafjarðar

Föstudaginn 30. október kl. 17-21
Laugardaginn 31. október kl. 11-16

 

Fyrirkomulag þingsins
Öllum íbúum er boðið að taka þátt og koma málum á dagskrá. Hægt er að taka þátt í öllu þinginu eða einungis hluta þess. Dyrnar eru opnar allan tímann.

Hvernig samfélag sérð þú fyrir þér?
Brothættar byggðir byggja á þátttöku og frumkvæði íbúa og ÞIÐ setjið stefnuna í verkefninu. Niðurstöður þingsins verða notaðar til að marka stefnu verkefnisins næstu árin.

Nafn á verkefnið
Á þinginu verður einnig kosið um nafn á verkefnið og er öllum frjálst að koma með tillögur.

Veitingar
Það verður alltaf heitt á könnunni en einnig verður boðið upp á kvöldverð og hádegisverð, ásamt því að þinginu lýkur með kökuhlaðborði.

Fundarstjórn
Sigurborg Kr. Hannesdóttir frá ráðgjafafyrirtækinu Ildi mun stýra þinginu.

Nánari upplýsingar
Bergdís Þrastardóttir, verkefnisstjóri, veitir nánari upplýsingar í gegnum tölvupóst, bergdis@vestfirdir.is, eða í síma 450 6610 eða 8523550.