Fara í efni

Beint frá býli dagurinn á Eysteinseyri

Þann 23. ágúst verður fjölskylduhátíð og matar- og handverksmarkaður á bænum Eysteinseyri í tilefni af hinum árlega Beint frá býli degi.
 
Þann dag munu heimavinnsluaðilar og smáframleiðendur úr landshlutanum mæta á Eysteinseyri til að kynna og selja vörur sínar.
 
Veitingasala verður á staðnum. Á bænum eru hundar, landnámshænur og sauðfé í kring, ásamt leiksvæði fyrir börn og gott berjaland.
 
Á Tálknarfirði eru fallegar hvítar strendur, gönguleiðir og góðir veitingastaðir í 5 mínútna fjarlægð.
 
Sutt er í einstakar náttúruperlur eins og Rauðusand, Látrabjarg, Selárdal og Dynjanda.
 
Hlökkum til að sjá ykkur sem flest og eiga skemmtilegan dag saman!