Mikil þátttaka og góður andi einkenndi 71. Fjórðungsþing Vestfirðinga sem lauk á Patreksfirði í dag. Þar komu saman sveitarstjórnarfulltrúar alls staðar af Vestfjörðum, þar á meðal fjölmargir nýkjörnir fulltrúar sem sátu þingið í fyrsta sinn, og samþykktu 13 ályktanir um helstu hagsmunamál landshlutans.
Þingfulltrúar tóku þátt í vinnustofum þar sem unnið var að forgangsröðun verkefna í Svæðisskipulagi Vestfjarða. Fjallað var um hlutverk sveitarstjórnarfólks í innleiðingu skipulagsins og hvernig best væri að tryggja að markmið þess skiluðu sér í stefnumótun og ákvörðunum sveitarfélaganna. Vegna þess hversu margir eru nýir í sveitarstjórnum á svæðinu var starfsfólk Vestfjarðastofu með kynningu á starfsemi hennar og þeim fjölbreyttu verkefnum sem þar eru unnin í þjónustu við sveitarfélög, atvinnulíf og íbúa svæðisins.
Svæðisskipulag Vestfjarða, innviðir og samgöngur í brennidepli
Þingstörf gengu vel og voru samþykktar 13 ályktanir. Þar var meðal annars kallað eftir bættum samgöngum á Vestfjörðum, hraðari undirbúningi jarðgangaframkvæmda, eflingu flugsamgangna og úrbótum í fjarskiptamálum. Jafnframt var lögð áhersla á aukið orkuöryggi, áframhaldandi jarðhitaleit, skýra lagaumgjörð um lagareldi og endurskoðun hafnalaga til að mæta breyttum atvinnuháttum. Þá samþykkti þingið ályktanir um sameiginlega skólaþjónustu á Vestfjörðum og mikilvægi þess að stjórnvöld styðji við uppbyggingu innviða og samfélaga í landshlutanum. Hér má sjá allar samþykktar ályktanir.
Þá samþykkti þingið sérstaka stefnuályktun um framgang Svæðisskipulags Vestfjarða þar sem lögð er áhersla á að ríki, sveitarfélög og aðrir samstarfsaðilar sameinist um að hrinda markmiðum skipulagsins í framkvæmd. Í ályktuninni er dregin upp framtíðarsýn um sjálfbæra, samkeppnishæfa og eftirsóknarverða Vestfirði þar sem styrkleikar samfélaga, náttúru og atvinnulífs eru nýttir til áframhaldandi uppbyggingar og aukinna lífsgæða.
Á þinginu var lögð sérstök áhersla á Svæðisskipulag Vestfjarða og innleiðingu þess á nýju sveitarstjórnarkjörtímabili. Samþykktar ályktanir þingsins endurspegla jafnframt helstu hagsmunamál Vestfjarða og þau verkefni sem sveitarfélögin telja brýnt að vinna áfram að.