Fara í efni

Styrkúthlutun Öll vötn til Dýrafjarðar

Auglýst var eftir styrkumsóknum 21. apríl 2021úr Frumkvæðissjóði sem verkefnisstjórn verkefnisins Öll vötn til Dýrafjarðar veitir úr í umboði Byggðastofnunar fyrir verkefnastyrki til nýsköpunar- og samfélagsverkefna á Þingeyri og við Dýrafjörð. 

Umsóknarfrestur rann út 11. maí 2021. Til úthlutunar voru 7,770 milljónir. Alls bárust 19 umsóknir. Heildarumfang verkefna er umsóknir lúta að er um 44,7 milljónir. Sótt var um rúmlega 24 milljónir. Allt voru þetta umsóknir sem féllu vel að verkefninu Öll vötn til Dýrafjarðar en eins og gefur að skilja, þá var ekki til fjármagn til að úthluta til allra í fyrstu umferð. Reynt var að velja sem fjölbreyttust verkefni og m.a. var stuðst við stigagjöf eftir mat á tilteknum þáttum. Úthlutað var styrkjum til 13 verkefna tengdum menningu og listum, atvinnuuppbyggingu og nýsköpun. Allt eru þetta verkefni sem verkefnisstjórn telur líkleg til árangurs og að þau muni hafa jákvæð áhrif á Þingeyri og við Dýrafjörð. 

Nafn umsækjenda Nafn verkefnis Styrkupphæð 
Blábankinn - Samfélagsmiðstöðin á Þingeyri ses  Blábankinn - Startup Westfjords     820.000 ISK
Guðrún Steinþórsdóttir  Viðskiptaáætlun fyrir ferðaþjónustu í Brekkudal  Dýrafirði     400.000 ISK
Iwona Motycka  Viðskiptaáætlun - bakarí     400.000 ISK
Janne Kristensen  Danish Weekend in Þingeyri     300.000 ISK
Kómedíuleikhúsið  Upptökuver Kómedíuleikhússins     800.000 ISK
Lára Dagbjört Halldórsdóttir  Í garðinum hjá Láru     900.000 ISK
Listakisi  List í Alvirðu 2021    800.000 ISK
Marsibil G. Kristjánsdóttir  Útilistaverk á gömlu smiðjuna á Þingeyri     350.000 ISK
Óttar Freyr Gíslason  Finndu mig í fjöru - Náttúrustígur    500.000 ISK
Pétur Albert Sigurðsson  Trúnó - Tónlistarsmiðja fyrir börn     400.000 ISK
Sigmundur F. Þórðarson  Ný vefsíða fyrir Þingeyri     400.000 ISK
Sæverk ehf.  Tilraunaveiðar á krabba í Dýrafirði  1.000.000 ISK
Westfjords Residency / Simbahöllin  Frumkvöðlasvæði for kids     700.000 ISK
  Samtals  7.770.000 ISK
     
     

Verkefnisstjórn óskar öllum styrkhöfum til hamingju með styrkveitinguna.