Fara í efni

Styrkúthlutun Öll vötn til Dýrafjarðar

Auglýst var eftir styrkumsóknum 17. desember 2018 úr sjóði sem verkefnisstjórn Allra vatna til Dýrafjarðar veitir úr í umboði Byggðastofnunar fyrir verkefnastyrki til nýsköpunar- og samfélagsverkefna á Þingeyri og við Dýrafjörð. 

Umsóknarfrestur rann út 15. janúar 2019. Til úthlutunar voru 7 milljónir. Alls bárust 39 umsóknir sem er metfjöldi á landsvísu. Aldrei hafa borist eins margar umsóknir í tengslum við úthlutun í brothættum byggðum. Heildarumfang verkefna er umsóknir lúta að er um 120 milljónir. Sótt var um rúmlega 30 milljónir. Allt voru þetta umsóknir sem féllu vel að verkefninu Öll vötn til Dýrafjarðar en eins og gefur að skilja, þá var ekki til fjármagn til að úthluta til allra í fyrstu umferð. Reynt var að velja sem fjölbreyttust verkefni og m.a. var stuðst við stigagjöf eftir mat á tilteknum þáttum. Úthlutað var styrkjum til 16 verkefna tengdum menningu og listum, atvinnuuppbyggingu og nýsköpun. Allt eru þetta verkefni sem verkefnisstjórn telur líkleg til árangurs og að þau muni hafa jákvæð áhrif á Þingeyri og við Dýrafjörð. 

Þeir aðilar sem sendu inn umsóknir núna en fengu ekki úthlutað, verða hvattir til að senda þær aftur inn í næstu úthlutun. Stefnt er að því að auglýsa eftir styrkumsóknum strax aftur eða núna í mars,  með úthlutun í apríl 2019.

Nafn umsækjenda Nafn verkefnis Styrkupphæð 
Austan mána ehf Sköpunarsveimur  400.000 ISK
Blábankinn Uppfærsla Þingeyrarvefsins  180.000 ISK
Borgný Gunnarsdóttir Námskeið og fyrirlestrar Víkingaskóla Skálans 570.000 ISK
Golfklúbburinn Gláma Þingeyri/Hjalti Proppé Aðstaða Golfklúbbburinn Gláma 98.0000 ISK
Jón Sigurðsson  Hljóðfærasafn Jóns - Musical instruments museum  500.000 ISK
Kristín Þórunn Helgadóttir  Handverkssýning - opin vinnustofa 200.000 ISK
Marsibil G. Kristjánsdóttir  Gísla saga víkingaviðburðir og námskeið  400.000 ISK
Pálmar Kristmundsson  Listaakademían á Þingeyri 500.000 ISK
Pálmar Kristmundsson  The Tank 1.000.000 ISK
Pálmar Kristmundsson  Hjólreiðakeppnin Ísafjörður-Þingeyri 100.000 ISK
Samfélagsmiðstöðin á Þingeyri ses (Blábankinn Stafrænir flakkarar og störf án staðsetningar  1.000.000 ISK
Sébastien Biet  Bicycle week 90.000 ISK
Sébastien Biet  Graphic design courses 80.000 ISK
Wouter Van Hoeymissen  Invite one family per year 2019-2020 500.000 ISK
Wouter Van Hoeymissen  Wall Pantings in Þingeyri  300.000 ISK
Wouter Van Hoeymissen  Invite the architect of The Tank Yasuaki Tanago to Þingeyri 200.000 ISK