Fara í efni

Styrkir til rannsókna og nýsköpunar í Vestur Barðastrandasýslu

Fréttir Ranníba

Opnað hefur verið fyrir umsóknir úr rannsókna- og nýsköpunarsjóði Vestur- Barðastrandasýslu (Rannýba). Sjóðurinn hefur það hlutverk að fjölga atvinnutækifærum með því að efla rannsóknir og nýsköpunarstörf fyrirtækja, einstaklinga og stofnana sem hafa aðsetur eða lögheimili í Vestur-Barðastandasýslu. 

Úthlutun verður í maí 2019 og verður sérstaklega litið til verkefna sem: 

  • Stuðla að búsetu ungs fólks.
  • Efla samstarf á milli svæða.
  • Efla þekkingu á auðlindum svæðisins.
  • Stuðla að aukinni menningarstarfsemi.
  • Stuðla að bættri umgengni við umhverfið og náttúru.

 Umsóknarfrestur er til og með 1. maí 2019 og er hægt að skila umsókn hér.