Í rúmt ár hefur Vestfjarðastofa verið á leið grænna skrefa með þremur sveitarfélögum á Vestfjörðum; Súðavíkurhreppi, Reykhólahreppi og Strandabyggð.
Í lok síðustu viku fór fram fyrsta úttektin í verkefninu, þar sem starfsmenn Vestfjarðastofu fóru og heimsóttu Strandabyggð á Hólmavík. Eftir ítarlega og nákvæma úttekt kom í ljós að skrifstofur Strandabyggðar uppfylltu yfir 90% af kröfunum sem gerðar eru í skrefi 1 og hafa þá formlega uppfyllt það sem til þarf í því skrefi. Eins og kunnugt er þá eru grænu skrefin 5 og því liggur leiðin næst í skref 2 í umbótum grænu skrefanna.
Af þessu tilefni var forsvarsmanni verkefnisins á Hólmavík, Heiðrúnu Harðardóttur, afhent viðurkenning fyrir skrefið fyrir hönd Strandabyggðar. Starfsfólk Vestfjarðastofu óskar henni og Strandabyggð innilega til hamingju með gott grænt skref!