Fara í efni

Strandabyggð tekur fyrsta græna skrefið!

Fréttir Græn skref
Heiðrún Harðardóttir, starfsmaður Strandabyggðar, tekur við viðurkenningu frá Vestfjarðastofu úr hön…
Heiðrún Harðardóttir, starfsmaður Strandabyggðar, tekur við viðurkenningu frá Vestfjarðastofu úr höndum Hjörleifs Finnssonar verkefnastjóra umhverfis- og loftlagsmála

Í rúmt ár hefur Vestfjarðastofa verið á leið grænna skrefa með þremur sveitarfélögum á Vestfjörðum; Súðavíkurhreppi, Reykhólahreppi og Strandabyggð.

Í lok síðustu viku fór fram fyrsta úttektin í verkefninu, þar sem starfsmenn Vestfjarðastofu fóru og heimsóttu Strandabyggð á Hólmavík. Eftir ítarlega og nákvæma úttekt kom í ljós að skrifstofur Strandabyggðar uppfylltu yfir 90% af kröfunum sem gerðar eru í skrefi 1 og hafa þá formlega uppfyllt það sem til þarf í því skrefi. Eins og kunnugt er þá eru grænu skrefin 5 og því liggur leiðin næst í skref 2 í umbótum grænu skrefanna.

Af þessu tilefni var forsvarsmanni verkefnisins á Hólmavík, Heiðrúnu Harðardóttur, afhent viðurkenning fyrir skrefið fyrir hönd Strandabyggðar. Starfsfólk Vestfjarðastofu óskar henni og Strandabyggð innilega til hamingju með gott grænt skref!